Opna Öryggis og Heimilstćkja mótiđ fór fram um helgina

Katlavöllur er fallegur í góđu veđri en 68 kylfingar tóku ţátt í opna Öryggis og Heimilstćkja mótinu sem fram fór í gćr í blíđskaparveđri. Um helmingur

Opna Öryggis og Heimilstćkja mótiđ fór fram um helgina
Íţróttir - Hjálmar Bogi Hafliđason - Lestrar 536 - Athugasemdir ()

Slegiđ af ţriđja teig
Slegiđ af ţriđja teig
Katlavöllur er fallegur í góðu veðri en 68 kylfingar tóku þátt í opna Öryggis og Heimilstækja mótinu sem fram fór í gær í blíðskaparveðri. Um helmingur þátttakenda kom utan Húsavíkur og er það fagnaðarefni að völlurinn laði kylfinga víða að. Mikil breidd var í mótinu en þátttakendur voru með allt frá 0,7 í forgjöf og upp í fulla forgjöf.

Spilað var Texas-Scramble og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Nándarverðlaun voru á 3. og 5. braut. Mótið gekk vel fyrir sig í góðu golfveðri og góð stemning var meðal áhorfenda í skálanum. Fyrstu verðlaun hlutu Magnús G. Hreiðarsson og barnabarnið hans Reynir Örn Hannesson, önnur verðlaun hlutu Sigurður Hreinsson og Sigurjón Sigurðsson. Þessir eru allir félagar í GH, Golfklúbbi Húsavíkur. Þriðja sætu hluti Fylkir Þór Guðmundson úr GÓ og Matthea Sigurðardóttir úr GA. 640.is óskar vinningshöfum til hamingju með árangurinn.

                              Sigurgeir Stefánsson slær upp að níunda gríni

 

   Það var góð stemning meðal áhorfenda og er sérstök athygli vakin á bleiku skreytingunum

 

                                       Tóta gefur Gulla Stefáns góð ráð


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ