Ásgeir: Ţađ er gaman ađ vinna

„Ţađ er gaman ađ vinna og sérstaklega á Húsavíkurvelli. Liđsheildin góđ og allt liđiđ stóđ sig vel, viđ vorum góđir í seinni hálfleik og kláruđum ţetta,"

Ásgeir: Ţađ er gaman ađ vinna
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 827 - Athugasemdir ()

Ásgeir fékk súkkulađiskóinn
Ásgeir fékk súkkulađiskóinn

„Það er gaman að vinna og sérstaklega á Húsavíkurvelli. Liðsheildin var góð og allt liðið stóð sig vel, við vorum góðir í seinni hálfleik og kláruðum þetta," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, Heimabakarísmaður leiksins en hann skoraði tvö mörk og átti flottan leik er Völsungur sigraði Aftureldingu, 4-2, í gær.

„Munurinn á liðunum var að við nýttum okkur veikleika þeirra aftast og sóttum hratt á þá. Við gleymdum okkur tvisvar en skoruðum fjögur og það var nóg," sagði Ásgeir en hann sagðist hafa keyrt sig algjörlega út í gær og lítið eftir á tanknum til þess að landa þrennunni.

„Maður var orðinn svo þreyttur í endann svo ég bað bara um skiptingu. Hrannar kom inn á og spilaði sínar fyrstu mínútur í sumar, hann átti það skilið þetta grey," sagði kjúllinn brosandi um fyrirliðann.

Strákarnir mæta Reyni í Sandgerði um næstu helgi og það verður sannkallaður toppslagur en liðin sitja í fyrsta og öðru sæti deildarinnar með tíu stig.

„Leikurinn leggst mjög vel í mig, við erum að fara í Sandgerði og taka þrjú stig. Liðið er á góðu skriði núna og það er enginn að fara stoppa okkur. Við kunnum vel við okkur á toppnum," sagði Ásgeir Sigurgeirsson eftir sigurinn í gær.

geiri3

fagna

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kóngarnir taplausir á toppi deildarinnar

Halldór Fannar: Stemningin er góð

Hrannar Björn: Viðurkenni það alveg að ég fékk smá gæsahúð


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ