Völsungur- Fjarđarbyggđ/Leiknir 2-2

Völsungurstúlkur í 4. flokki  tóku á móti stöllum sínum í Fjarđarbyggđ/Leikni á Húsavíkurvelli í dag.  Leikurinn var vart hafinn ţegar gestirnir skoruđu

Völsungur- Fjarđarbyggđ/Leiknir 2-2
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 455 - Athugasemdir ()

Marki Önnu Halldóru fagnađ í dag.
Marki Önnu Halldóru fagnađ í dag.

Völsungurstúlkur í 4. flokki  tóku á móti stöllum sínum í Fjarðarbyggð/Leikni á Húsavíkurvelli í dag.  Leikurinn var vart hafinn þegar gestirnir skoruðu fyrsta markið en Jóney Ósk Kristjánsdóttir jafnaði leikinn um miðjan hálfleikinn. Anna Halldóra Ágústsdóttir kom síðan heimamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks eftir mikla rispu upp hægri kantinn. 2-1 í hálfleik. Gestirnir náðu síðan að jafna leikinn í síðari hálfleik og má segja að jafnræði hafi lengstum verið með liðunum og jafntefli því sanngjörn úrslit.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ