Völsungsstelpur sigruđu 5-1

Stelpurnar í meistarflokki Völsungs sigruđu Fjarđarbyggđ/Leikni 5-1 í Fjarđarbyggđarhöllinni sl. laugardag. Mörk Völsunga í leiknum  skoruđu Helga Björg

Völsungsstelpur sigruđu 5-1
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 552 - Athugasemdir ()

Jóney Ósk í leiknum gegn Tindastóli.
Jóney Ósk í leiknum gegn Tindastóli.

Stelpurnar í meistarflokki Völsungs sigruðu Fjarðarbyggð/Leikni 5-1 í Fjarðarbyggðarhöllinni sl. laugardag.

Mörk Völsunga í leiknum  skoruðu Helga Björg strax á 1. mínútu en í upphafi seinni hálfleiks (50. mín) skoraði Fjarðarbyggð. Hafrún skoraði svo á 55. mín. og aftur á 82. mín og þær  Harpa á 87. mín og Berglind á  88. mín.

 

 

Leikurinn var í B-riðli 1. deildar kvenna og kom Jóney Ósk Sigurjónsdóttir, sem er einungis 14 ára, við sögu í honum en að öllu jöfnu spilar hún með 4. flokki. Hún spilaði einnig með 3. flokki gegn Tindastóli á dögunum og skoraði þar eitt mark. Myndir úr þeim leik er hægt að skoða á síðu Halla Sig 

 

Þá spiluðu 3. flokkur drengja gegn Haukum á laugardaginn og lauk leiknum með sigri Völsunga, 6-1. Halli var einnig mættur þar og myndir frá þeim leik er hægt að skoða hér.

 

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ