17. ágú
Völsungsstelpur einar á toppnum eftir sigur á Hetti.Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 417 - Athugasemdir ( )
Völsungsstelpurnar sitja nú einar á toppi B-riðils fyrstu deildar eftir góða ferð á Egilsstaði í dag þar sem þær unnu heimastúlkur 2-1 á Vilhjálmsvelli.
Höttur komst yfir á 8. mínútu leiksins þegar Elísabet Sara Emilsdóttir skoraði en Berglind Ósk Kristjánsdóttir jafnaði leikinn á þeirri 25. Þannig stóðu leikar allt til á 88. mínútu leiksins en þá skoraði Guðlaug Sigríður Magnúsdóttir sigurmarkið dýrmæta. Völsungur hefur nú þriggja stiga forskot á Hött fyrir síðustu umferðina en þá mæta Völsungur Fjarðarbyggð/Leikni á útivelli.





















640.is á Facebook
Athugasemdir