19. feb
			Vi lifum enn  fiskiAlmennt -  Hafr Hreiarsson - Lestrar 973 - Athugasemdir ( )
			
		„Við lifum nú á fiski ennþá þó menn hafi haldið annað um tíma“. Sagði Hermann Arnar Sigurðsson bílstjóri hjá Eimskip þar sem hann var að laga til fisk í körum í húsakynnum fyrirtækisins í dag. Fiskur þessi var veiddur á Breiðafirði í gær af netabátnum Geir frá Þórshöfn, ekið af Eimskip norður í nótt og fór til vinnslu hjá GPG í dag.
Fiskflutningar eru stór hluti flutninga hjá Eimskip á Húsavík og nú þegar vetrarvertíð er í fullum gangi keyra menn ört á Snæfellsnesið þar sem viðskiptabátar GPG stunda veiðar sínar. Þá er akstur á fiski fyrir Vísi hf. umsvifamikill hjá Eimskipsmönnum.


















									


 640.is  Facebook
										
Athugasemdir