Umfjöllun: Valtađ yfir SindrastúlkurÍţróttir - Ingvar Björn Guđlaugsson - Lestrar 1257 - Athugasemdir ( )
Völsungsstúlkur hófu leik í 1.deildinni ţetta áriđ á heimaleik gegn Sindra frá Höfn í Hornafirđi. Hófst leikurinn rétt fyrir kristilegan kvöldmatartíma og lét sú gula sjá sig í fyrri hálfleik ţótt ögn hafi kólnađ í ţeim síđari.
Byrjunarliđ Völsungs: Anna Jónína Valgeirsdóttir, Dagbjört Ingvarsdóttir, Jóney Ósk Sigurjónsdóttir, Ásrún Ósk Einarsdóttir, Helena Rós Ţórólfsdóttir, Harpa Ásgeirsdóttir(f)(Anna Halldóra Ágústsdóttir’12), Helga Björk Heiđarsdóttir(Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir’77), Ţórunn Birna Jónsdóttir(Brynja Matthildur Brynjarsdóttir’60), Hulda Ósk Jónsdóttir, Laufey Elísa Hlynsdóttir, Ruth Ragnarsdóttir(Elma Rún Ţráinsdóttir’63).
Markaskorarar: Laufey Elísa 2, Hulda Ósk 2, Helena, Helga Björk, Dagbjört, Jóney, Brynja.

Hvađ á mađur eiginlega ađ segja? Harpa fyrirliđi fór meidd útaf snemma leiks eftir ađ hafa veriđ tćkluđ. Stuttu síđar brutum viđ ísinn en Helena Rós Ţórólfsdóttir klíndi ţá aukaspyrnu frá vítateigshorni í fjćrhorniđ. 1-0 fyrir okkur og glćsilegt mark ţarna. Ekki leiđ á löngu áđur en stelpurnar bćttu viđ en Ruth Ragnarsdóttir átti ţá fantafína fyrirgjöf á milli varnarlínu og markmanns sem Helga Björk Heiđarsdóttir setti í fjćrhorniđ í fyrstu snertingu. 2-0!
Gestirnir minnkuđu muninn međ langskoti sem sveif yfir Önnu Jónínu og lenti rétt undir slánni. 2-1 en viđ vorum ekki lengi ađ refsa fyrir ţađ mark ţví rétt fyrir hálfleikinn skeiđađi Anna Halldóra Ágústsdóttir upp völlinn og átti frábćran langan bolta frá hćgri inn í teig ţar sem Laufey Elísa tók viđ honum og klárađi svo fćri sitt vel. 3-1 og ţannig stóđu leikar í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn byrjađi svipađ og sá fyrri endađi og voru okkar stelpur komnar í 4-1 á 53.mínútu. Laufey Elísa bar boltann upp og lagđi út á kant á Ruth sem átti fyrirgjöf sem sveif í gegnum teiginn ţar sem Hulda Ósk tók hann niđur. Hulda lék á varnarmann og lagđi boltann út í teig á Dagbjörtu sem setti hann ţéttingsfast í horniđ. Nokkrum mínútum síđar breytti Hulda Ósk svo stöđunni í 5-1 eftir ađ hafa fengiđ stungusendingu, leikiđ á markmanninn og dúndrađ boltanum í markiđ.

Nćst kom fimm mínútna kafli ţar sem Völsungsstelpur gerđu ţrjú mörk. Undirritađur var svo upptekinn viđ ađ punkta niđur ađ hann missti af seinni tveimur í ţeirri hrinu og kamerumađurinn gat ađeins rétt umlađ hverjar sáu um ađ skora. Fyrst kom fyrirgjöf frá Ruth sem Hulda Ósk tók niđur, lék inn í teig og klárađi af mikilli yfirvegun til ţess ađ koma okkur í 6-1.
Tveimur mínútum síđar kom Jóney Ósk okkar stelpum í 7-1 međ góđu langskoti áđur en ađ Laufey Elísa breytti stöđunni í 8-1 međ öđru skoti utan af velli!

Áđur en ađ yfir lauk höfđu stelpurnar komist í 9-1 en Hulda stakk boltanum inn á Laufey Elísu sem renndi honum fyrir markiđ á Brynju Matthildi sem renndi knettinum í netiđ af stuttu fćri. Dómarinn flautađi svo til leiksloka og lokatölur 9-1.
Ég veit ekki hvađ meira skuli segja. Helena Rós var valin Nivea-stúlka leiksins en hún lék fantavel í vinstri bakverđi til ađ byrja međ og síđar meir á miđjunni eftir skiptingar. Dró vagninn í fyrri hálfleik međ góđri ađstođ Ruthar og Laufeyjar sem sáu um ađ skapa flest okkar fćri. Hulda Ósk var einnig kyngimögnuđ í síđari hálfleik ásamt ţví ađ liđiđ allt var ađ finna sig vel. Ţá keyrđu stelpurnar upp tempóiđ sem hafđi á löngum köflum vantađ í fyrri hálfleik ţótt liđiđ vćri yfir.

Ótrúlega góđ byrjun á 1.deildinni hjá stelpunum og nú ţurfa ţćr ađ byggja ofan á ţessa flottu byrjun. Nćsti leikur byrjar í stöđunni 0-0 og stelpurnar taka ađeins sjálfstraustiđ úr ţessum leik međ sér í ţann nćsta. Ţćr mega ţó fagna vel í kvöld enda vel ađ ţví komnar. ÁFRAM VÖLSUNGUR!
Tengdar greinar:
Helena Rós: Tóku allir mjög vel á móti mér (myndband)
Jói Páls: Viđ förum í alla leiki til ţess ađ vinna ţá alveg sama hvađ liđin heita



















640.is á Facebook
Athugasemdir