Umfjllun: Einu stigi fr 1.deild

Vlsungur sigrai Fjarabygg, 1-0, me marki fr Marko Blagojevic 79.mntu leiksins 20.umfer 2.deildar dag. Leikurinn fr fram rennandi blautum

Umfjllun: Einu stigi fr 1.deild
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 342 - Athugasemdir ()

Vlsungar fagna sigurmarkinu
Vlsungar fagna sigurmarkinu

Völsungur sigraði Fjarðabyggð, 1-0, með marki frá Marko Blagojevic á 79.mínútu leiksins í 20.umferð 2.deildar í dag. Leikurinn fór fram á rennandi blautum Húsavíkurvelli en eftir sigurinn eru Völsungar á toppnum með 43 stig, aðeins einu stigi frá því að tryggja sér sæti í 1.deild að ári.

Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Stefán Jón Sigurgeirsson (Sveinbjörn Már Steingrímsson '80), Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson, Halldór Fannar Júlíusson, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Arnþór Hermannsson (Ásgeir Sigurgeirsson '65), Hrannar Björn Steingrímsson (f), Hafþór Mar Aðalgeirsson, Milan Pesic.

Gul spjöld: Halldór Fannar, Hafþór Mar, Milan Pesic & Sveinbjörn Már.

Það var blautt og vindurinn tók vel á móti öllum þeim sem að mættu á Húsavíkurvöll  í dag eða gryfjuna eins og völlurinn er kallaður. Margir kusu að dúsa inn í bíl og horfa á leikinn í gegnum regndropana á meðan að hinsvegar óvenju margir klæddu sig í pollagallan og stóðu allan leikinn í brekkunni, virkilega gaman að sjá og þið öll sem busluðu þarna í brekkunni eigið hrós skilið.

Völsungar byrjuðu leikinn af krafti og Milan Pesic átti fínt skot af 25 metra færi eftir um fimm mínútur en vel varið hjá Amir í marki gestanna. Þremur mínútum síðar voru svo heimamenn nálægt því að taka forystuna en þá átti Hrannar Björn fyrirliði Völsungs sendingu inn fyrir á Hafþór Mar sem lét vaða á fjærstöng en heimamenn náðu að hreinsa frá og Sigvaldi Þór fékk þá boltann í lappirnar, flengdi líka þessum fallega bolta inn í teig beint á hausinn á Haffa sem skallaði í stöngina.

haffiskalli

Eftir þetta róast leikurinn og erfiðar aðstæður, mikil bleyta og vindur gerði leikmönnum beggja liða erfitt fyrir. Gestirnir létu þó vita af sér eftir 25.mínútna leik en Dejan Pesic var með allt lokað í rammanum sem fyrr og bauð upp á glæsilega markvörslu.

Sex mínútum síðar voru Fjarðabyggð nálægt því að skora sjálfsmark. Varnarmaður gestanna ætlaði þá að hreinsa boltann frá markinu, vindurinn greip knöttinn og Amir Mehica í markinu mátti hafa sig allan við að verja boltann og sló hann yfir markið.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Arnþór Hermannsson gott tækifæri til að koma Völsungum yfir en skot hans rétt yfir markið. Í kjölfarið flautaði Juniorinn og kuldalegir leikmenn drifu sig niður í klefa til þess að ylja sér.

arnthor

Seinni hálfleikur fór fjörlega af stað. Klingenberginn minnti á sig með sleggju í tréverkið en það hefði verið draumamark ef þessi hammer hefði legið inni. Tíu mínútum síðar átti Marko skalla eftir horn frá Sigvalda en boltinn framhjá og klukkan á Húsavíkurvelli var farin að tikka ansi óþægilega hratt. Þegar að um tuttugu mínútur voru eftir fengu heimamenn aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teig. Marko Blagojevic mundaði vinstri fótinn en aukaspyrna hans vel varin af Amir og Völsungar freistuðu þess að ná í sigurinn mikilvæga.

blago1

Á 79.mínútu leiksins gerðist það svo. Marko Blagojevic fær boltann fyrir utan teig, leikur á einn og hamrar hann í markhornið. Það ætlaði allt um koll að keyra í brekkunni og það mátti sjá fólk rúlla sér upp og niður brekkuna í hálfgerðum regnhlífardansi, stórkostlegt. 1-0 og spennandi lokamínútur framundan.

blago2

Það hitnaði vel undir mönnum á síðustu mínútunum en Heimir Þorsteinsson, þjálfari Fjarðabyggðar, fékk að líta rauða spjaldið eftir mótmæli og veifaði Sverrir línuvörður honum bless eftir að Heimir hafði hellt sér yfir hann á leið af svæðinu. Gestirnir voru hinsvegar mjög nálægt því að jafna leikinn undir lokinn en á 94.mínútu endaði skalli þeirra í þverslá eftir aukaspyrnu. Skömmu síðar fór flautan upp í Dodda Junior sem átti góðan dag og sigur Völsunga staðreynd.

Heimabakarísmaður leiksins: Marko Blagojevic
markomotm
Unnar Þór Garðarsson afhendi Marko súkkulaðiskóinn og gjafabréf í leikslok.

Marko var frábær í öftustu línu ásamt Klettinum, Sigvalda og Stebba John. Halldór og Hrannar voru gríðarlega vinnusamir á miðjunni en þeir áttu báðir mjög góðan leik í dag og skiluðu sínu vel og gott betur. Allt liðið getur þó enn betur og enn meira. Nú er það næsta skref og það er skrefið í næstu deild. Það er ekkert enn í hendi og nú þarf að klára næsta leik áður en fólk getur byrjað að fagna. Strákarnir eru yfirvegaðir og fókuseraðir á verkefnið og ég trúi ekki neinu öðru en að þeir mæti á Kópavogsvöll um næsti helgi og kvitti fyrir sig og veruna í deildinni með farmiða í töskunum upp í næstu deild. ÁFRAM VÖLSUNGUR!

dori

hbs

drag

sissi

blago3

dejan

sms

klingy

folkidalinunni

milan

blago4

stadan

Tengdar greinar:
Dragan: Hugsum alltaf bara um næsta leik

Marko Blagojevic: Þurfum að halda einbeitingu


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr