Tap gegn Ţrótti

Völsungsstelpurnar tóku á móti Ţrótti í 1. deildinni sl. föstudagskvöld. Leikiđ var viđ góđar ađstćđur og brekkan hefđi alveg rúmađ fleiri. Gestirnir

Tap gegn Ţrótti
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 551 - Athugasemdir ()

Inda var valin mađur leiksins.
Inda var valin mađur leiksins.

Völsungsstelpurnar tóku á móti Þrótti í 1. deildinni sl. föstudagskvöld. Leikið var við góðar aðstæður og brekkan hefði alveg rúmað fleiri. Gestirnir komust yfir á 34 mín. leiksins þegar Valgerður Jóhannsdóttir kom boltanum í netið. Staðan 0-1 í leikhlé.

 

Indíana Þórsteinsdóttir jafnaði síðan leikinn fljótlega í seinni hálfleik með marki úr aukaspyrnu. Þróttarstelpur bættu síðan tveim mörkum við á tíu mínútna kafla, fyrst Soffía Ummarin Kristinsdóttir og síðan Harpa Lind Guðnadóttir.

 

 

 

Indíana var valin maður leiksins hjá Völsungi og fékk að launum gjafapakkningu frá NIVEA á Íslandi sem stendur að valinu ásamt 640.is.

Inda skoraði flott mark beint úr aukaspyrnu.

Stelpurnar fagna markinu gegn Þrótti.

Helga Björk í baráttunni.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ