Sumarleikar HSŢ tókust vel

Sumarleikar HSŢ 2011 voru haldnir á Laugum um nýliđna helgi og tókust nokkuđ vel enda lék veđriđ viđ mótsgesti. Laugardagurinn var sólríkur og hlýr en

Sumarleikar HSŢ tókust vel
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 798 - Athugasemdir ()

Sumarleikar HSÞ 2011 voru haldnir á Laugum um nýliðna helgi og tókust nokkuð vel enda lék veðrið við mótsgesti. Laugardagurinn var sólríkur og hlýr en sunnudagurinn skýjaður og vindasamur.

 

Á heimasíðu frjálsíþróttamanna HSÞ segir að 159 keppendur frá 7 félögum hafi tekið þátt; 32 frá HSÞ, 44 frá UFA, 35 frá UMSE, 32 frá UMSS, 11 frá ÚÍA, 4 frá UMF. Laugdæla og 1 frá ÍR. Margir nýttu sér góða veðrið og aðstöðuna og gistu á tjaldsvæðinu.

Keppendur okkar hjá HSÞ stóðu sig með mikilli prýði. Margir bættu árangur sinn og við fyrstu athugun á héraðsmetaskrá utanhúss litu örfá ný héraðsmet dagsins ljós. Sum þeirra gild en önnur á mörkunum þar sem að meðvindur var oft of mikill í hlaupum. Selmdís Þráinsdóttir stökk 2,81 í stangarstökki og er það nýtt héraðsmet í flokki 19 ára kvenna. Brynjar hljóp 300 m gr. á 48,39 sek og setti nýtt héraðsmet í 14 ára flokki pilta. Brynjar og Elvar hlupu báðir undir héraðsmeti í 80 m grindahlaupi 14 ára pilta en meðvindur var of mikill. Hafdís Sigurðardóttir hljóp 200 m á 25,15 sem er nýtt héraðsmet samkvæmt héraðsmetaskrá en meðvindur var of mikill eða 2,8. Í hlut keppenda HSÞ komu 25 gull, 21 silfur og 20 brons. (123.is/hsth)


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ