Strákarnir međ góđan útisigur í Ţorlákshöfn

Völsungsstrákarnir gerđu góđa ferđ í Ţorlákshöfn í dag ţegar ţeir léku viđ Knattspyrnufélagiđ Ćgi í átta liđa úrslitum 3. deildar. Völsungar skoruđu ţrjú

Strákarnir međ góđan útisigur í Ţorlákshöfn
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 761 - Athugasemdir ()

Bjarki skorađi eitt marka Völsungs í dag.
Bjarki skorađi eitt marka Völsungs í dag.

Völsungsstrákarnir gerðu góða ferð í Þorlákshöfn í dag þegar þeir léku við Knattspyrnufélagið Ægi í átta liða úrslitum 3. deildar. Völsungar skoruðu þrjú mörk gegn einu marki heimamanna.

Það tók strákana innan við hálftíma leik að komast í 3-0 en það voru þeir Hermann Aðalgeirsson, Bjarki Baldvinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson sem skoruðu mörk Völsunga.

Heimamenn í Ægi minnkuðu muninn síðan þegar Ársæll Jónsson skoraði eina mark þeirra á ´73 mín. leiksins. Frábær sigur hjá strákunum okkar sem gefur þeim gott veganesti í síðari leikinn sem fram fer á Húsavík nk. þriðjudag.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ