06. feb
			Öskudagurinn á Húsavík.Almennt -  Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 1077 - Athugasemdir (
			
		Mikið líf og fjör var á Húsavík í dag, líkt og ávallt á öskudag. Fljótlega upp úr birtingu fór ungviðið að fara á milli verslana, stofnana og fyrirtækja þar sem þau tóku lagið og þáðu ýmiskonar góðgæti að launum.
Börnin voru skrautlega búin í hinum ýsmu gerfum og t.a.m sást bæði til köngulóamannsins og Sollu stirðu á ferðinni í miðbænum. Síðdegis var svo fjölmenni á öskudagsballi í íþróttahöllinni þar sem m.a. kötturinn var sleginn úr tunnunni.
Þjóðtrúin segir að öskudagurinn eigi sér átján bræður. Miðað við hvernig veðrið var í dag ættu húsvíkingar, sem og aðrir þingeyingar, að eiga ágætistíð í vændum næstu vikurnar. Spáir reyndar stormi á morgum.

 

















 
									 


 
 

 
 
 640.is á Facebook
 640.is á Facebook 
										
Athugasemdir