GH sigrađi 3. deildina međ stćl

Eins og fram kom á 640.is um helgina fór sveitakeppni ţriđju deildar GSÍ fram um helgina á Katlavelli.   Mótiđ var leikiđ í flottu veđri viđ

GH sigrađi 3. deildina međ stćl
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 343 - Athugasemdir ()

Katlavöllurinn skartađi sínu fegursta um helgina.
Katlavöllurinn skartađi sínu fegursta um helgina.

Eins og fram kom á 640.is um helgina fór sveitakeppni þriðju deildar GSÍ fram um helgina á Katlavelli.

 

Mótið var leikið í flottu veðri við góðar aðstæður þar sem völlurinn skartaði sínu fegursta og áttu keppendur vart til orð yfir útsýnið og fegurðina sem blasti við þeim frá vellinum.

 

Sveit GH var skipuð þeim Skúla Skúlasyni, Sigurði Hreinssyni, Unnari Þór Axelssyni, Arnari V. Ingólfssyni, Örvari Þór Sveinssyni og Einari Gesti Jónassyni ásamt liðsstjóranum Kidda Lúlla. Það er skemmst frá því að segja að strákarnir fóru á kostum og unnu alla sína leiki og leika þar með í 2. deild að ári.

 

GH sveitin spilaði spennandi úrslitaleik við GOB ,Golfklúbb Bakkakots, en þar var liðstjóri húsvíkingurinn Kristinn Wium. Leikurinn fór í bráðabana og á annari holunni í honum unnu húsvíkingar og urðu þar með meistarar í 3. Deild. Glæsilegt hjá þeim.

GSS urðu í 3 sæti en GG og GOS féllu í 4 deild.

Sigursveit GH með verðlaunin í mótslok.

 

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ