Elfar Árni ćfir međ Íslands- og bikarmeisturum KR

Fótboltavefsíđan fótbolti.net greinir frá ţví í dag ađ Elfar Árni Ađalsteinsson, leikmađur Völsungs, ćfi ţessa dagana međ Íslands og bikarmeisturum KR.

Elfar Árni ćfir međ Íslands- og bikarmeisturum KR
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 616 - Athugasemdir ()

Elfar Árni skorar gegn Reyni í sumar.
Elfar Árni skorar gegn Reyni í sumar.

Fótboltavefsíðan fótbolti.net greinir frá því í dag að Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Völsungs, æfi þessa dagana með Íslands og bikarmeisturum KR.

Elfar Árni hefur verið lykilmaður í liði Völsungs undanfarin ár en hann var fyrirliði liðsins síðari hlutann í sumar og þá var hann valinn í lið ársins í annarri deildinni í vali þjálfara og fyrirliða.

Þessi 21 árs gamli leikmaður verður samningslaus um áramótin og mörg félög í Pepsi-deildinni og fyrstu deildinni hafa sýnt honum áhuga.

Í haust æfði Elfar Árni með Breiðabliki og fyrir helgi hóf hann síðan æfingar hjá KR-ingum.

Elfar Árni skoraði þrettán mörk í 22 leikjum í annarri deildinni í sumar en hann lék bæði frammi hjá Völsungi sem og framarlega á miðjunni.

Samtals hefur Elfar Árni skorað 39 mörk með Völsungi síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2006. (fotbolti.net)


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ