Dejan Pesic kominn aftur heim (myndband)Íţróttir -  Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 1154 - Athugasemdir (
			
		Dejan Pesic markvörður Völsungs er mættur til Húsavíkur á nýjan leik og tók fyrstu æfinguna með liðinu í kvöld
eftir að hafa verið í Serbíu frá því í haust. Dejan var verðskuldað valinn besti leikmaður 2. deildar á lokahófi
fótbolta.net í lok síðasta sumars auk þess að vera í liði ársins en hann var einnig kosinn bestur á lokahófi Völsungs.
Dejan leyndi ekki gleði sinni yfir því að vera kominn aftur og brosti allan hringinn eftir æfinguna í kvöld.
,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur til Húsavíkur og hitta vina mína og leikmennina. Ég vona að við getum
unnið enn fleiri sigra á komandi tímabili og verið glaðir. Ég átti góðan tíma úti með fjölskyldunni minni og vinum í
afslöppun en núna er ég mættur aftur til æfinga, nálgast þetta sem atvinnumaður og mun æfa vel," sagði Dejan meðal annars í
viðtali við Græna Herinn í kvöld en hér fyrir neðan má sjá viðtalið í heild sinni auk myndbrota frá
æfingunni.

 

















 
									 


 
 

 
 
 640.is á Facebook
 640.is á Facebook 
										
Athugasemdir