27. jún
Máli Landverndar vegna Kröflulínu 4 vísað fráAlmennt - - Lestrar 186
Héraðsdómur Norðurlands eystra vísaði í gær frá dómsmáli Landverndar um ógildingu framkvæmdaleyfis í Skútustaðahreppi vegna Kröflulínu 4.
Niðurstaða héraðsdóms byggir á því að Landvernd hafi ekki lögvarða hagsmuni af því að krefjast ógildingar framkvæmdaleyfis.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í apríl síðastliðnum kröfu Landverndar um ógildingu ákvörðunar sveitarstjórnar Skútustaðahrepps um útgáfu framkvæmdaleyfisins.
Á heimasíðu Landsnets segir að vinna við Kröflulínu 4 sé í fullum gangi og ganga framkvæmdir vel. Áætlað er að línan verið tilbúin i rekstur i byrjun september. (landsnet.is)