08. feb
Völsungur tapaði fyrir Þór í leik um þriðja sætiðÍþróttir - - Lestrar 325
Leikið var um þriðja sætið í Kjarnafæðismótinu í gær og mættust þar Þór og Völsungur.
Fyrri hálfleikur var svona frekar jafn út á vellinum en það voru Þórsarar sem sköpuðu þau færi sem litu dagsins ljós.
Strax á 7. mín. komast Þórsarar yfir eftir fyrirgjöf frá Inga Frey sem Ármann Pétur flikkaði áfram til Kristins Þórs Björnssonar sem lék á varnarmann og skoraði.
Á 30. mín. átti Ármann Pétur ágætis færi þegar markmaður Völsungs sem kominn var út úr teignum missti frá sér boltann en hann náði að komast fyrir skot Ármanns á síðustu stundu.
Síðari hálfleikur er síðan 10.mín. gamall þegar Ármann Pétur skorar með skalla á fjærstöng eftir hornspyrnu Þórsara. Jóhann Helgi bætir svo þriðja markinu við eftir að hafa sloppið einn á móti markmanni á 72. mín.
Það var svo komið í uppbótartíma þegar Þórsarar bættu við tveimur mörkum með stuttu millibili fyrst Kristinn þór Rósbergsson sem laumaði boltanum í netið á nærstöng úr mjög þröngu færi og síðan Bjarki þór Jónasson sem potaði boltanum í netið úr þvögu eftir hornspyrnu.
Maður leiksins. Kristinn Þór Björnsson Þór.
kdn.is