Nýja Háey landaði á Húsavík í dagAlmennt - - Lestrar 303
Nýr línubátur GPG Seafood ehf., Háey I ÞH 295, kom í fyrsta skipti til löndunar á Húsavík í dag.
Báturinn, sem er 30 BT að stærð, var smíðaður hjá Víkingbátum á Esjumelum og er af nýrri gerð báta frá þeim.
Háey I var með um 15 tonna afla en áður hafið báturinn landað tvisvar á norðurleiðinni. Fyrst 8 tonnum á Rifi og síðan 12 tonnum á Siglufirði. Báturinn heldur aftur í róður í kvöld.
Heimahöfn Háeyjar I er Raufarhöfn og skipstjóri á henni Sævar Þór Ásgeirsson.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.
Háey I ÞH 295.
Háey I kemur að bryggju.
Þórir Örn Gunnarsson hafnarstjóri Norðurþings tók á móti endanum.
Starfsmenn GPG Seafood Ágúst Már Gunnlaugsson verkstjóri og Sigurður Ólafsson útgerðarstjóri á tali við Þóri Örn hafnarstjóra.
Sævar Þór Ásgeirsson skipstjóri á Háey I er hér á krananum í löndun.
Landað í desemberblíðunni.