Nýja Háey landaði á Húsavík í dag

Nýr línubátur GPG Seafood ehf., Háey I ÞH 295, kom í fyrsta skipti til löndunar á Húsavík í dag.

Nýja Háey landaði á Húsavík í dag
Almennt - - Lestrar 302

Háey I ÞH 295 kemur til hafnar í dag.
Háey I ÞH 295 kemur til hafnar í dag.

Nýr línubátur GPG Seafood ehf., Háey I ÞH 295, kom í fyrsta skipti til löndunar á Húsavík í dag.

Báturinn, sem er 30 BT að stærð, var smíðaður hjá Víkingbátum á Esjumelum og er af nýrri gerð báta frá þeim.

Háey I var með um 15 tonna afla en áður hafið báturinn landað tvisvar á norðurleiðinni. Fyrst 8 tonnum á Rifi og síðan 12 tonnum á Siglufirði. Báturinn heldur aftur í róður í kvöld.

Heimahöfn Háeyjar I er Raufarhöfn og skipstjóri á henni Sævar Þór Ásgeirsson.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Háey I ÞH 295.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Háey I kemur að bryggju.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Þórir Örn Gunnarsson hafnarstjóri Norðurþings tók á móti endanum.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Starfsmenn GPG Seafood Ágúst Már Gunnlaugsson verkstjóri og Sigurður Ólafsson útgerðarstjóri á tali við Þóri Örn hafnarstjóra.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Sævar Þór Ásgeirsson skipstjóri á Háey I er hér á krananum í löndun.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Landað í desemberblíðunni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744