Kristín Lea er ungfrú NorðurlandAlmennt - - Lestrar 704
Kristín Lea Sigríðardóttir var í gærkveldi krýnd Ungfrú Norðurland í Sjallanum á Akureyri.Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni sem var hin glæsilegasta.
Kristín Lea er 21 árs og útskrifast í vor sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum.
Auk þess að vera valin Ungfrú Norðurland vann Kristín einnig titlana netstúlka Sjallans og Ryk stúlkan.
Í öðru sæti í keppninni um Ungfrú Norðurland varð Stefanía Ingadóttir og Katrín Emma hafnaði í þriðja sæti. Þær keppa í Ungfrú Ísland ásamt Heiðdísi Rósu og Kristrúnu Ösp sem lentu í fjórða og fimmta sæti.
Meðfylgjandi mynd af Kristínu Leu tók Halla Marín Hafþórsdóttir út á Skjálfanda sl. sumar en myndir og myndbrot frá keppninni má sjá á vefsíðunni akureyri.net sem Örlygur Hnefill Örlygsson stýrir.