Kristín Lea er ungfrú Norðurland

Kristín Lea Sigríðardóttir var í gærkveldi krýnd Ungfrú Norðurland í Sjallanum á Akureyri.Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni sem var hin

Kristín Lea er ungfrú Norðurland
Almennt - - Lestrar 704

Kristín Lea Sigríðardóttir.
Kristín Lea Sigríðardóttir.

Kristín Lea Sigríðardóttir var í gærkveldi krýnd Ungfrú Norðurland í Sjallanum á Akureyri.Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni sem var hin glæsilegasta.

Kristín Lea er 21 árs og útskrifast í vor sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum.

Auk þess að vera valin Ungfrú Norðurland vann Kristín einnig titlana netstúlka Sjallans og Ryk stúlkan.

Í öðru sæti í keppninni um Ungfrú Norðurland varð Stefanía Ingadóttir og Katrín Emma hafnaði í þriðja sæti. Þær keppa í Ungfrú Ísland ásamt Heiðdísi Rósu og Kristrúnu Ösp sem lentu í fjórða og fimmta sæti.

Meðfylgjandi mynd af Kristínu Leu tók Halla Marín Hafþórsdóttir út á Skjálfanda sl. sumar en myndir og myndbrot frá keppninni má sjá á vefsíðunni akureyri.net sem Örlygur Hnefill Örlygsson stýrir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744