29. sep
Gasmengun frá eldgosinu í HoluhrauniAlmennt - - Lestrar 186
Spáð var í gær að gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni yrði vart í dag á svæðinu frá Tröllaskaga í vestri að Tjörnesi í austri.
Gekk það eftir eins og með-fylgjandi myndir sýna en þær voru teknar um miðjan dag á Húsavík.
Á morgun (þriðjudag) er spáð suðlægum vindi. Gasmengunin verður því líklega mest á svæði frá Tjörnesi til Bakkaflóa.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.