28. feb
FSH hlaut gullverðlaun í LífshlaupinuAlmennt - - Lestrar 501
Framhaldsskólinn á Húsavík hlaut gullverðlaun í Lífshlaupi ÍSÍ þriðja árið í röð.
Skólinn hefur tekið þátt í Lífshlaupsverkefninu frá upphafi og ávallt staðið sig vel.
Viðar Sigurjónsson, starfsmaður ÍSÍ á Akureyri, heimsótti skólann í morgun og afhenti verðlaunagrip við stutta athöfn á sal.
Þessi mynd er fengin af heimasíðu skólans en þar óskar Framhaldsskólinn á Húsavík nemendum sínum innilega til hamingju með árangurinn.