Völsungur vann Fram og er komið í úrslitakeppninaÍþróttir - - Lestrar 227
Völsungur tók á móti Fram í 2. deild kvenna í gær og hafði sigur á þeim bláklæddu.
Gestirnir komust yfir þegar um hálftími var liðinn af leiknum og staðan 1-0 í hálfleik.
Heimastúlkur jöfnuðu metin á ´62 mínútu þegar Sarah Catherine Elnicky skoraði eftir fyrirgjöf Hörpu Ásgeirsdóttur.
Völsungar misstu mann út af á ´70 mínútu þegar Margrét Selma Steingrímsdóttir fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
En Harpa, sem tók skóna niður úr hillunni þegar Völsungur þarfnaðist hennar á lokasprettinum, skoraði síðan sigurmarkið þegar um korter var til leiksloka.
Glæsileg endurkoma hjá henni sem tryggði liði Völsungs sæti í úrslitakeppni 2. deilda sem hefst um næstu helgi.
Sarah skoraði jöfnunarmark Völsungs.
Þær grænu fagna.
Harpa og Hildur Anna Brynjarsdóttir fagna sigurmarki Völsunga.
Mar markmaður Völsungs ver hér glæsilega.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution