Vinstri grænir mótmæla fyrirhugaðri sölu rafdreifikerfis OH

Félagsfundur í Norðurþingsdeild Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, haldinn á Húsavík þann 11. nóvember 2009, mótmælir því harðlega að rafdreifikerfi

Félagsfundur í Norðurþingsdeild Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, haldinn á Húsavík þann 11. nóvember 2009, mótmælir því harðlega að rafdreifikerfi Orkuveitu Húsavíkur ehf. verði selt til RARIK ohf. og Orkusölunnar ehf.

Fundurinn skorar á stjórn Orkuveitunnar að fella þennan samning sem ekki er gerður með vitund eigenda, það er íbúa Norðurþings. Jafnframt skorum við á kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Norðurþings að koma í veg fyrir að þetta verði að veruleika. Þessi gjörningur hefur ekki fengið lýðræðislega umræðu, hvorki í samfélaginu né meðal kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn. Engin rök hafa komið fram sem styðja þessa ákvörðun.

Þegar Orkuveitunni var breytt í eignarhaldsfélag sögðu allir sveitarstjórnarfulltrúar að alls ekki stæði til að selja Orkuveituna né hluta hennar.

 

Fundurinn lýsir fullri ábyrgð á hendur meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á þessum gjörningi.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744