Vindorkuver á Hólaheiði

Þann 14. júní s.l. var haldinn kynningarfundur í íþróttahúsinu á Kópaskeri um skipulags- og umhverfismatsferli vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar

Vindorkuver á Hólaheiði
Almennt - - Lestrar 245

Frá fundinum á Kópaskeri. Lj. Gaukur.
Frá fundinum á Kópaskeri. Lj. Gaukur.

Þann 14. júní s.l. var haldinn kynningarfundur í íþróttahús-inu á Kópaskeri um skipu-lags- og umhverfismatsferli vegna fyrirhugaðrar upp-byggingar vindorkuvers á Hólaheiði sunnan Hófaskarðs-leiðar. 

Þetta kemur fram á heimasíðu Norðurþings og þar segir m.a:

Verkefnið kynntu fulltrúar framkvæmdaaðila Qair Iceland ehf, ráðgjafar frá Eflu og einnig mættu til fundarins fulltrúar Norðurþings sem skipulagsyfirvalds.

Á fundinum voru kynnt fyrstu drög að breytingu aðalskipulags Norðurþings þar sem horft er til þess að 33,3 km² svæði á Hólaheiði verði skilgreint sem iðnaðarsvæði þar sem byggja megi upp allt að 40 vindmyllur. Fyrirhugaðar vindmyllur gætu í hæstu stöðu spaða náð allt að 200 m hæð yfir landi.

Reiknað er með að raforkuframleiðsla á svæðinu geti verið allt að 200 MW. Fyrirliggjandi hugmynd að breytingu aðalskipulags má finna hér.

Fundurinn var vel sóttur, en auk þeirra sem kynntu verkefnið mættu um 40 gestir. Umtalsverðar umræður urðu eftir kynninguna þar sem fram komu ýmis sjónarmið sem horft verður til við framhald vinnunnar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744