Veglegar gjafir til Hvamms, heimili aldraða á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 425
Á hátíðarhöldunum 1. maí færðu stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum Hvammi, heimili aldraðra veglega gjöf.
Um er að ræða meðferðarstól og sjónvarp er tengist öryggismálum á heimilinu.
Það var Hróðný Lund yfirhjúkrunarfræðingur á heimilinu sem veitti gjöfinni móttöku.
Hún notaði tækifærið og þakkaði vel fyrir gjöfina sem kæmi að góðum notum um leið og hún gerði að umræðuefni hvað það skipti miklu máli fyrir að hafa öflug stéttarfélög á svæðinu. Félög sem væru tilbúin að leggja sitt að mörkum til góðra málefna eins og þessi gjöf staðfesti.
Það voru formenn stéttarfélaganna þriggja sem stóðu að hátíðinni sem afhendu Hvammi gjöfina, Aðalsteinn Árni Baldursson fyrir Framsýn, Jónas Kristjánsson formaður Þingiðnar og Helga Þuríður Árnadóttir formaður Starfsmannafélags Húsavíkur. Ljósmynd: framsyn.is