Vegagerðin semur við Mýflug út mars

Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug frá Reykjavík til Vestmannaeyja og einnig til Húsavíkur út mars.

Vegagerðin semur við Mýflug út mars
Almennt - - Lestrar 240

Flugstöðin á Húsavíkurflugvelli.
Flugstöðin á Húsavíkurflugvelli.

Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug frá Reykjavík til Vestmannaeyja og einnig til Húsavíkur út mars.

Flognar verða fjórar ferðir í viku á tímabilinu 1. mars til 31. mars.

Fram kemur í  tilkynningu Vegagerðarinnar að flogið verði þrjá daga í viku milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur sem og milli Húsavíkur og Reykjavíkur.

Fyrirkomulag á farmiðabókunum verði óbreytt frá því sem hafi verið á undanförnum vikum.

„Flugvélar af gerðinni Beechcraft King Air B200, sem er 9 farþegasæta vél, og Jetstream 32, sem tekur 19 farþega í sæti, verða notaðar í þetta verkefni.

Flugleiðir þessar eru styrktar sérstaklega af ríkinu til að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á þessum leiðum á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðunum,“ segir í tilkynningunni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744