Útkall vegna eitraðs gassAlmennt - - Lestrar 509
Slökkvilið Norðurþings og lögreglan á Húsavík voru kölluð út skömmu eftir klukkan 15 í dag. Klór og sýrutegund höfðu blandast saman og myndað eitrað gas.
Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, greinir frá þessu en þar segir Rúnar Traustason aðalvarðstjóri að tveir hafi verið fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Húsavík og einn farið þangað af sjálfsdáðum.
„Það blönduðust saman klór og sýra sem myndaði eitrað gas. Við fórum og loftræstum rýmið sem þetta gerðist í og hlutleystum efnið,“ segir Rúnar.
„Það var einn sem fór af sjálfsdáðum á Heilbrigðisstofnun Þingeyringa til nánari athugunar og tveir voru fluttir með sjúkrabíl. Það er ekki talið að þeir séu alvarlega veikir. Ég held að þetta hafi sloppið frekar vel, allavega við fyrstu sýn,“ segir Rúnar.
Aðgerðir slökkviliðs tóku um 80 mínútur að sögn Rúnars.





























































640.is á Facebook