Útkall vegna eitraðs gass

Slökkvilið Norðurþings og lög­regl­an á Húsa­vík voru kölluð út skömmu eft­ir klukk­an 15 í dag. Klór og sýru­teg­und höfðu bland­ast sam­an og myndað

Útkall vegna eitraðs gass
Almennt - - Lestrar 507

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag.

Slökkvilið Norðurþings og lög­regl­an á Húsa­vík voru kölluð út skömmu eft­ir klukk­an 15 í dag. Klór og sýru­teg­und höfðu bland­ast sam­an og myndað eitrað gas. 

Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, greinir frá þessu en þar segir Rún­ar Trausta­son aðal­varðstjóri að tveir hafi verið flutt­ir með sjúkra­bíl á sjúkra­húsið á Húsa­vík og einn farið þangað af sjálfs­dáðum. 

„Það blönduðust sam­an klór og sýra sem myndaði eitrað gas. Við fór­um og loftræst­um rýmið sem þetta gerðist í og hlut­leyst­um efnið,“ seg­ir Rún­ar. 

„Það var einn sem fór af sjálfs­dáðum á Heil­brigðis­stofn­un Þing­eyr­inga til nán­ari at­hug­un­ar og tveir voru flutt­ir með sjúkra­bíl. Það er ekki talið að þeir séu al­var­lega veik­ir. Ég held að þetta hafi sloppið frek­ar vel, alla­vega við fyrstu sýn,“ seg­ir Rún­ar. 

Aðgerðir slökkviliðs tóku um 80 mín­út­ur að sögn Rún­ars. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744