30. jan
Úthlutanir úr lista- og menningarsjóði Norðurþings 2022Almennt - - Lestrar 107
Lista- og menningarsjóður Norðurþings er opinn fyrir umsóknir allt árið en honum er ætlaður til að styrkja smærri verkefni sem stuðla að eflingu menningarstarfs í Norðurþingi.
Hámarksúthlutun úr sjóðnum eru 100.000 kr. í hvert verkefni.
Árið 2022 hlutu eftirfarandi verkefni styrk á bilinu 40.000 – 100.000 kr. úr lista- og menningarsjóði Norðurþings:
- Joachim B. Schmidt vegna upplestrar á Raufarhöfn úr bók sinni Kalmann, en Raufarhöfn er sögusvið bókarinnar
- Urður, tengslanet kvenna, vegna viðburða sem veita konum tækifæri til að kynna sér menningu, list og atvinnuuppbyggingu víða á Norðausturlandi
- Einar Óli Ólafsson vegna útgáfutónleika á Húsavík, Akureyri og í Reykjavík
- Kvenfélag Keldhverfinga vegna afmælis- og menningarhátíðar kvenfélagsins í Skúlagarði í júní
- Aldey Unnar Traustadóttir vegna Druslugöngunnar á Húsavík
- Tónasmiðjan vegna tónleikanna Rokkum gegn sjálfsvígum
- STEM Húsavík vegna fjölskylduferðar í tengslum við NorthQuake 2022 jarðskjálftaráðstefnu sem fór fram á Húsavík
- Salóme Bregt Hollanders vegna sýningarinnar Gárur sem verður sett upp í Hvalasafninu á Húsavík í ársbyrjun 2023
- Klaudia Migdal vegna fjölmenningar- og jógahelgi á Húsavík
- Húsavíkurstofa og félag eldri borgara vegna samanbrjótanlegra útibása fyrir bæjarhátíðir og markaði sem meðlimir í félagi eldri borgara byggðu í tengslum við aðventuhátíðina Jólabærinn minn
- Húsavíkurstofa og Húsavíkurkirkja vegna tónlistarflutnings í Húsavíkurkirkju sem var hluti af aðventuhátíðinni Jólabærinn minn
Eins og sjá má eru verkefnin sem hljóta styrk úr lista- og menningarsjóði Norðurþings fjölbreytt og skemmtileg.
Á heimasíðu Norðurþings eru allir sem hafa hugmyndir að því hvernig efla mætti menningarlíf í Norðurþingi hvattir til að sækja um í sjóðinn.