29. júl
Um hundrað hlauparar hlupu BotnsvatnshlaupiðÍþróttir - - Lestrar 580
Botnsvatnshlaup Landsbankans var hlaupið á Mærudögunum en það var haldið af Hlaupahópnum Skokka á Húsavík.
Um hundrað hlauparar tóku þátt en boðið var upp á tvær vegalendir, 7,6 km. og 2,6 km. og hófst hlaupið við Botnsvatn og lauk í Skrúðgarðinum við Búðará.
Eins og meðfylgjandi myndir, sem Fríður Helga Kristjánsdóttir tók, sýna nutu þátttakendur og áhorfendur fallegrar náttúru svæðisins sem skartaði sínu fegursta í sumarblíðunni.
Í 7,6 km. hlaupinu varð Atli Steinn Sveinbjörnsson hlutskarpastur af körlunum á tímanum 31:14 og Helga Jóna varð fyrst af konunum í mark á tímanum 38:53.
Úrslit 7,6 km. hlaupsins má sjá hér
Ef smellt er á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.