17. des
Um 20.000 farþegar farið um HúsavíkurflugvöllAlmennt - - Lestrar 283
Um tuttugu þúsund farþegar hafa farið um Húsavíkurflugvöll á árinu 2016 sem er veruleg fjölgun frá fyrri árum sem er afar gleðilegt.
Þetta kemur fram á heimasíðu Framsýnar.
Fulltrúar félagsins fögnuðu þessum merkilega áfanga í gær með starfsmönnum á Húsavíkurflugvelli og tveimur flugmönnum hjá Flugfélaginu Erni sem staddir voru á vellinum þegar fulltrúar félagsins komu færandi hendi með tertu og konfekt.