Tveir blakleikir um helgina

Um helgina mun úrvalsdeildarlið Völsungskvenna í blaki spila tvo leiki í Mizunodeildinni.

Tveir blakleikir um helgina
Íþróttir - - Lestrar 522

Um helgina mun úrvalsdeildarlið Völsungskvenna í blaki spila tvo leiki í Mizunodeildinni.

Í kvöld ( föstudag)  kl. 18.30 verður leikur á Akureyri við KA og á sunnudag kl. 14.00 er leikur hér á Húsavík við Stjörnuna.

Völsungur fékk í vikunni liðsstyrk fyrir lokaátökin í deild og bikar.  Ítölsk blakstúlka Michell Traini er kominn til Húsavíkur og mun verða gjaldgeng strax um helgina í þessa tvo leiki.

Völsungsliðið hefur staðið sig mjög vel í vetur og vakið athygli fyrir mikla báráttu og þrautseigju á fyrsta ári í úrvalsdeidinni og eftir góða ferð suður um síðustu helgi þar sem liðið tryggði sig áfram í 8 liða úrslit bikarkeppninnar var ákveðið að taka þetta skref og styrkja liðið  fyrir næstu leiki. 

Blakarar vonast eftir  góðum stuðningi á sunnudaginn í höllinni !


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744