Tíundu bekkingar kynntu sér starfsemi stéttarfélaganna

Fjölmennur hópur nemenda úr 10. bekk Borgarhólsskóla kom í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í morgun til að fræðast um starfsemi stéttarfélaga, það

Fjölmennur hópur nemenda úr 10. bekk Borgarhólsskóla kom í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í morgun til að fræðast um starfsemi stéttarfélaga, það er um þrjátíu nemendur ásamt kennurum.

Fulltrúi stéttarfélaganna fór yfir tilgang og markmið stéttarfélaga á vinnumarkaði auk þess að fara yfir innihald kjarasamninga. Nemendurnir meðtóku fræðsluna og spurðu út í hitt og þetta er tengis tilgangi stéttarfélaga og réttindum þeirra á vinnumarkaði. 

Á heimasíðu Framsýnar segir að það sé ánægjulegt til þess að vita að grunn- og framhaldsskólar á svæðinu leggji mikið upp úr því að fá forystumenn stéttarfélaga inn í skólana með fræðslu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744