Tíundi bekkur sýnir High School Musical í SamkomuhúsinuAlmennt - - Lestrar 110
Nemendur tíunda bekkjar Borgarhólsskóla frumsýndu söngleikinn High School Musical í Samkomuhúsinu í gær.
Leikstjórn var í höndum Karenar Erludóttir en Hreindís Ylva Garðarsdóttir á íslenska þýðingu verksins.
Skólasöngleikurinn er bandarísk sjónvarpsmynd frá Disney Channel sem kom út í árið 2006.
Stjarna körfuboltaliðsins í East High, Troy Bolton og stærðfræðisnillingurinn Gabriella Montez hittast á gamlárskvöld í partýi á skíðasvæði í jólafríinu. Þar taka þau þátt í karókí keppni og syngja Start of Something New. Þau komast að því að það er einhver neisti á milli þeirra og enda á því að skiptast á símanúmerum.
Nemendur að lokinni frumsýningu í gær.
Næsta sýning er í dag kl. 14:00 og svo eru sýningar á sunnudag, mánudag og þriðjudag.