Tiltekt í húsnæði HvalasafnsinsAlmennt - - Lestrar 368
Á dögunum fór fram mikil tiltekt í húsnæði Hvalasafnsins á jarðhæð, undir safninu sjálfu.
Á heimasíðu safnsins segir að þar hafði safnast saman ýmislegt sem ekki tengdist starfsemi safnsins. Einnig hefur verið unnið að hvölum og þeir hreinsaðir í rýminu í gegnum árin og hefur rýmið ekki alltaf verið skipulega þrifið eftir þá vinnu.
Þá hefur í gegnum árin komið upp mýrarrauði í gegnum steingólf. Í sumar var farin fyrri umferð tiltektar og umfram dóti komið annað í geymslu og öðru hent.
Á dögunum var svo seinni umferð tiltektar framkvæmd og samdi Hvalasafnið við Björgunarsveitina Garðar um aðstoð við vinnuna og mættu þeir með mikinn mannskap, tæki og tól og vannst verkið hratt og vel á einni kvöldstund.
Eins og sést er rýmið heldur illa farið og stendur nú til að mála, flota gólf og gera rýmið vistlegra til framtíðar.
Eins og sést er gólfið heldur illa farið og hefur mýrarrauði komið þar upp í gegnum árin og sett mark sitt á það.
Meðfylgjandi myndir eru fengnar af heimasíðu Hvalasafnsins.