Þrjú tilboð bárust í Flókahús

Fjölmenni var við opnun tilboða í Flókahúsið sem fram fór í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík kl 16 í dag.

Þrjú tilboð bárust í Flókahús
Almennt - - Lestrar 629

Þrjú tilboð bárust í Flókahúsið.
Þrjú tilboð bárust í Flókahúsið.

Fjölmenni var við opnun tilboða í Flókahúsið sem fram fór í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík kl 16 í dag.

Á heimasíðu Norðurþings segir að þrjú tilboð hafi borists í húsið, frá Sölkusiglingum, Norðursiglingu og Gentle Giants.

Öllum tilboðunum fylgdi greinargerð um fyrirhugaða starfsemi sem og breytingar á húsinu.

Bjóðandi:             Upphæð:

Sölkusiglingar       20.100.000
Norðursigling        31.227.600
Gentle Giants        37.000.000

Byggðaráð mun í framhaldinu taka málið til afgreiðslu.

Engin tilboð bárust í Skemmuna sem einnig var auglýst til sölu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744