02. apr
Þorsteinn Íslandsmeistari í bogfimiÍþróttir - - Lestrar 324
Þorsteinn Aðalsteinsson úr UMF Eflingu í Reykjadal varð um helgina Íslandsmeistari í bogfimi innanhúss (með sveigboga) en Íslandsmótið fór fram í Laugardalshöll.
Kom sigur hans mjög á óvart því hann hóf æfingar á bogfimi sl. haust og hafði aðeins keppt á einu bogfimimóti áður.
Guðmundur Smári Gunnarsson fyrrverandi íslandsmeistari, sem hefur þjálfað þorstein í vetur og er einnig í Eflingu, varð í öðru sæti á mótinu og munaði einunigs millimetrum á þeim félögum í úrslitakeppninni sem fram fór í gær.
Lesa má meira um mótið hér