Jólatónleikar með Swing Komaníinu

Swing Kompaníið er í jólatónleikaför um landið á aðventunni þar sem þau koma fram í kirkjum með kórum á hverjum stað.

Jólatónleikar með Swing Komaníinu
Fréttatilkynning - - Lestrar 418

Swing Kompaníið.
Swing Kompaníið.

Swing Kompaníið er í jólatónleikaför um landið á aðventunni þar sem þau koma fram í kirkjum með kórum á hverjum stað.

Tónleikaförin ber yfirskriftina ,,Jólafönn” og er óhætt að fullyrða að þar sé eitthvað á boðstólnum fyrir alla.

Einstaklega skemmtilegar og hressandi útsetningar á jólalögum í bland við hátíðleika skapa einstakan atburð sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Swing Kompaníið skipa þau Greta Salóme fiðluleikari og söngkona, Unnur Birna Björnsdóttir fiðluleikari og söngkona, Lilja Björk Runólfsdótir söngkona, Gunnar Hilmarsson gítarleikari, Leifur Gunnarsson bassaleikari og Óskar Þormarsson trommuleikari."

Swing Kompaníið verður með tónleika í Húsavíkurkirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 20:30

Hægt er að kaupa miða á https://tix.is/is/event/2323/jolafonn-2015/


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744