21. jún
Suðrænar sumarsólstöðurAlmennt - - Lestrar 436
Það var framandi rómönsk stemning við Sölku í kvöld en skemmtunin er liður í Sumarsólstöðuhátíð í Þingeyjarsýslum á vegum Þingeyska matarbúrsins. Dagskráin er vegleg og er margt um að vera í allri sýslunni.
Margt var um gesti á litla torginu við Sölku en kokkurinn Völundur Snær mætti frá Bahamas til að grilla ásamt Berki kjöt úr Viðbót. Gestum líkaði vel maturinn og ómaði afrísk marimba tónlist undir. Það var gaman að sjá líf og fjör í miðbænum og gleði skína úr hverju andliti. Það vantaði þó kvöldsólina til að fullkomna gleðina en hlýtt og notalegt veður lék við gesti. Trúbador mætti svo á Sölku til að skemmta fólki fram eftir kvöldi.