03. maí
Strákarnir hefja leik í Borgunarbikarnum í dagÍþróttir - - Lestrar 310
Tímabilið hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu hefst með formlegum hætti í dag þegar Borgunarbikarinn hefur göngu sína.
Strákarnir fá þá lið KF í heimsókn á gervigrasið og hefjast leikar klukkan 14:00.
Liðið hefur verið að leika vel í vetur og tapaði til að mynda einungis einum leik í Lengjubikarnum.
Kvennalið Völsungs lék í undanúrslitum C-deildar Lengjubikarsins gegn Fjölni þann 1. maí. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 1-1 og því gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Fjölnir hafði betur.