02. nóv
Stórleikir í blaki um helgina... Íslandsmeistarar Aftureldingar í heimsóknÍþróttir - - Lestrar 181
Um helgina munu Völsungskonur mæta fyrnasterku liði Aftureldingar í úrvalsdeildinni í blaki.
Í tilkynningu segir að lið Aftureldingar hafi unnið alla sína leiki í vetur með yfirburðum auk þess að vera núverandi Íslandsmeistarar í blaki kvenna. Að sjálfsögðu munu okkar konur leggja sig fram um að stríða meisturunum og treysta á öflugan stuðning áhorfenda eins og í síðasta leik hér á Húsavík.
Völsungar tefla fram nýjum leikmanni, öflugri blakkonu Sladjönu Simic frá Serbíu sem mun vonandi styrkja okkar lið verulega í baráttunni í vetur
Leiknir verða tveir leikir, sá fyrri á föstudagskvöldinu kl. 20.00 og sá síðari á laugardag kl. 14.00
Enginn aðgangseyrir en tekið við frjálsum framlögum við innganginn ( td. 500 kall !) . veitingar til sölu og posi á staðnum. !
Áfram Völsungur !!