Stéttarfélögin auka þjónustu við erlenda félagsmenn

Erlendum starfsmönnum sem koma til Íslands hefur fjölgað verulega á síðustu árum.

Agnieszka Szczodrowska. Lj. Framsýn
Agnieszka Szczodrowska. Lj. Framsýn

Erlendum starfsmönnum sem koma til Íslands hefur fjölgað verulega á síðustu árum.

Það á við um félagssvæði Framsýnar og annarra stéttarfélaga á Íslandi.

Kallað hefur verið eftir því að stéttarfélögin gerðu sitt besta til að bæta þjónustuna við þennan stóra hóp verkafólks.

Til að mæta þörfinni hafa stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum ráðið Agnieszu Szczodrowsku í 50% starf hjá stéttarfélögunum og hóf hún störf í morgun. Aga var valin úr hópi 21 umsækjanda um starfið. Henni er ætlað að þjóna m.a. erlendum starfsmönnum er varðar þeirra réttindi á vinnumarkaði sem og öllum þeim öðrum sem leita til skrifstofunnar eftir upplýsingum.

Þá mun hún einnig koma að vinnustaðaeftirliti fyrir stéttarfélöginn. Aðalsteinn J. Halldórsson var áður í því starfi, það er áður en hann hætti hjá stéttarfélögunum. Frá þeim tíma hefur vinnustaðaeftirlitið að mestu legið niðri en með ráðningu á Ögu verður tekið myndarlega á þeim málum.

Á heimasíðu Framsýnar er Aga boðin velkomin til starfa en hún verður til staðar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.

Þar segir jafnframt að Aga þekki vel til starfa stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Hún hefur komið að því að túlka fyrir félögin þegar þess hefur þurft með auk þess að vera til staðar á viðburðum sem félögin hafa staðið fyrir og tengjast erlendu vinnuafli á svæðinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744