03. júl
Stelpurnar með stórsigur gegn ÁlftanesiÍþróttir - - Lestrar 142
Völsungur fékk Álftanes í heimsókn á PCC völlinn í gær og skemmst frá því að segja að þær völtuðu yfir gestina.
Völsungstelpurnar gengu frá gestunum í fyrri hálfleik en Sonja Björg Sigurðardóttir skoraði gott mark strax í upphafi.
Þær Sarah Catherine Elnecky og Krista Eik Harðardóttir bættu við laglegum mörkum.
3-0 í hálfleik fyrir grænum og Una Móeiður Hlynsdóttir bætti einu marki við í síðari hálfleik og lokastaðan 4-0.
Völsungur er í 4. sæti 2. deildar með 11 stig en á leik inni á þrjú efstu liðin. Fram er efst með 18 stig og Grótta og ÍR koma í annað og þriðja sæti með 14 stig.