Stelpurnar lögðu Hamrana

Völsungur fékk Hamrana frá Akureyri í heimsókn í gærkveldi og höfðu sigur 3-0. Liðið situr nú í 2. sæti 2. deildar kvenna með 25 stig.

Stelpurnar lögðu Hamrana
Íþróttir - - Lestrar 187

Hildur Anna Brynjarsdóttir kom Völsungum á bragðið
Hildur Anna Brynjarsdóttir kom Völsungum á bragðið

Völsungur fékk Hamrana frá Akureyri í heimsókn í gærkveldi og höfðu sigur 3-0. Liðið situr nú í 2. sæti 2. deildar kvenna með 25 stig.

Það var Hildur Anna Brynjarsdóttir sem kom Völsungum á bragðið með marki þegar rúmur hálftími var til leiksloka.

Sarah Catherine Elnicky tvöfaldaði forystuna skömmu síðar og gulltryggði svo sigurinn þegar um korter var eftir af leiknum.

Fjarðarbyggð/Höttur/Leiftur situr í efsta sæti 2. deildar kvenna með 27 stig eftir tíu umferðir. Völsungur ens og fyrr segir í öðru sæti með 25 stig eftir tíu leiki.

Í 3-4 sæti eru KH og Fram með 19 stig eftir níu leiki hvort félag.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744