22. apr
Spænskur framherji til VölsungsÍþróttir - - Lestrar 127
Spænski sóknarmaðurinn Mikel Abando Arana er genginn til liðs við Völsung og mun leika með þeim í sumar.
Mikel, sem er 27 ára, er frá Bilbao en hann er mættur í rjómablíðuna á Húsavík.
Mikel kemur frá Guadalajara sem leikur í neðri deildum spænska boltans en hefur einnig spilað í háskólabolt-anum í Bandaríkjunum.
"Við erum mjög spennt fyrir að sjá Mikel á PCC vellinum í sumar en hann kemur til með að styrkja okkar unga hóp mikið" segir í tilkynningu frá Völsungi en þeir grænu mæta Dalvík/Reyni í Mjólkurbikarnum á morgun, 23.apríl kl.14.00 á Húsavík.
Mikel er kominn með leikheimild og gæti spilað sinn fyrsta leik þar.