Snyrtistofan Bellitas opnði í dag á Húsavík

Bellitas snyrtistofa & naglastúdíó opnaði í dag, föstudaginn 9. september að Garðarsbraut 39 á Húsavík.

Snyrtistofan Bellitas opnði í dag á Húsavík
Almennt - - Lestrar 219

Marín Rut Karlsdóttir. Lj. framsyn.is
Marín Rut Karlsdóttir. Lj. framsyn.is

Bellitas snyrtistofa & naglastúdíó opnaði í dag, föstudaginn 9. september að Garðarsbraut 39 á Húsavík. 

Í tilefni dagsins var opið hús frá kl. 14:00-18:00.

Frá þessu segir á heimasíðu Framsýnar en formaður félagsins leit við á stofunni og færðu eigendum blóm frá félaginu. 

Á snyrtistofunni verður boðið upp á alla almenna snyrtingu; Litun og plokkun, handsnyrtingu, fótsnyrtingu, andlitsmeðferðir, vax og gelneglur. Einnig verður í boði að versla gjafabréf.

Það er Marín Rut Karlsdóttir snyrtifræðimeistari og naglafræðingur sem opnar stofuna.

Hún hefur undanfarin 6 ár starfað sem snyrtifræðingur á snyrtistofunni AquaSpa á Akureyri en ákvað að snúa aftur á heimaslóðir og opna stofu á Húsavík en hún er ættuð úr Aðaldal.

Ástæða er til að fagna þessari opnun, þrátt fyrir að karlar og konur í Þingeyjarsýslum gerist ekki fallegri má alltaf gera betur með því að fara í meðferð hjá Marín Rut.

Hér eru gagnlegar upplýsingar:

Tímapantanir á noona.is/bellitas

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið bellitas.snyrtistofa@gmail.com og í síma 846-4609. Instagram.com/bellitassnyrtistofa


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744