Smári skákmeistari Goðans-MátaÍþróttir - - Lestrar 319
Smári Sigurðsson varð skákmeistari Goðans-Máta í dag þegar skákþingi félagsins lauk á Húsavík.
Birkir Karl Sigurðsson varð efstur á mótinu en þar sem hann keppti sem gestur stóð Smári uppi sem sigurvegari. Páll Andrason, sem vann Stephen Jablon og Guðmundur Kristinn Lee, sem gerði jafntefli við Smára Sigurðsson í lokaumferðinni, urðu í 2-3. sæti á mótinu.
Hlynur Snær Viðarsson vann sigur í flokki 16 ára og yngri með 3,5 vinninga. Jón Aðalsteinn Hermannsson varð í öðru sæti með 3 vinninga og Bjarni Jón Kristjánsson varð í 3. sæti með 2. vinninga. Jón og Bjarni voru að taka þátt í sínu fyrsta kappskákmóti og stóðu sig með mikilli prýði. Sömu sögu er að segja af þeim Helga James og Jakub, þeir stóðu sig einnig vel á sínu fyrsta kappskákmóti. (641)
Sjá nánari úrslit hér og myndir frá mótinu hér
Á meðfylgjandi mynd sem Hermann Aðalsteinsson tók eru verðlaunahafarir, fv. Hlynur, Stephen, Ármann, Bjarni, Smári og Jón Aðalsteinn.