04. maí
Smári héraðsmeistari HSÞ í skákÍþróttir - - Lestrar 309
Smári Sigurðsson vann sigur á Héraðsmóti HSÞ í skák sem fram fór á Laugum í Reykjadal á sumardaginn fyrsta.
Smári vann sex skákir og gerði jafntefli í einni skák, gegn bróður sínum Jakob.
Héraðsmeistari liðins árs, Tómas Veigar Sigurðarson varð í öðru sæti með sex vinninga og Jakob Sævar Sigurðsson varð þriðji með 4,5 vinninga, örlítið stigahærri en Rúnar Ísleifsson, sem einnig fékk 4,5 vinninga.
Sjá má lokaúrslit mótsins hér